Fréttir

Leikir vikunnar

Fjórir leikir eru á dagskrá í Mikasadeildinni í blaki í vikunni. Þróttarar fá HK í heimsókn í karlaflokki í kvöld og hefst leikurinn kl. 18.40.

 

Á morgun er leikur Fylkis og Þróttar R í kvennaflokki og hefst sá leikur kl. 20.10 í Fylkishöllinni. Með heimasigri í leiknum kemst Fylkir upp fyrir Þrótt Nes í deildinni.

Á laugardaginn mætast svo toppliðin í karlaflokki, HK fær KA í heimsókn í Digranesið og hefst sá leikur kl. 14.00. KA getur með sigri gulltryggt sér deildarmeistaratitilinn í Mikasadeildinni.

Ýmir mætir KA í Digranesinu kl. 15.30 á laugardag í Mikasadeild kvenna. KA liðið er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig, jafnmörg stig og Fylkir og Þróttur Nes. Ýmir er í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig og á ekki möguleika á að komast í fjögur efstu.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning