Fréttir

Leifur dæmir grannaslag

Um helgina hefst fyrsta umferð í Evrópkeppni landsliða. Frændur okkar danir spila með sín bæði lið á morgun laugardag. Konurnar leika gegn grönnum sínum frá Svíþjóð og karlarnir við Króata.

 

Leifur Harðarson, alþjóðadómari í blaki var skipaður aðstoðardómari á leik Danmerkur og Svíþjóðar í kvennaflokki. Leifur hélt af landi brott í morgun og dæmir leikinn á morgun sem hefst kl. 17.00 á staðartíma. Eftir þann leik verður leikur Danmerkur og Króatíu en báðir þessir leikir fara fram í Gentofte í Kaupmannahöfn.

Eflaust verður um hörkuleiki að ræða á morgun en þetta er fyrri leikur liðanna í keppninni. Það lið sem hefur betur samanlagt úr báðum leikjum fer áfram í riðlakeppnina. Bein útsending frá leikjunum verður á www.volleyball.dk



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning