Leifur á faraldsfæti
Almennt - miðvikudagur 18.jan.12 23:57 - Lestrar 148
Leifur Harðarson, alþjóðadómari í blaki dæmdi leik í áskorendakeppni félagsliða í Evrópu. Að þessu sinni fór hann til Svíþjóðar og dæmdi leik í gærkvöld.
Leifur er á sínu síðasta ári í alþjóðlegri dómgæslu en vegna aldurs þarf hann að hætta í lok þessa árs. Í gærkvöld dæmdi hann leik í 16 liða úrslitum áskorendakeppni félagsliða kvenna í Evrópu. Dæmdi hann síðari leik Katrineholm frá Svíþjóð og Vizura Beograd og endaði leikurinn 3-0 fyrir gestina. Fyrri leik liðanna lauk einnig með sigri Vizura Beograd 3-1.
Katrineholm kom til Íslands haustið 2010 og spilaði í riðlakeppni NEVZA móts félagsliða en liðið vann þann riðil nokkuð sannfærandi.
Leifur á von á að fá fleiri verkefni á næstunni í alþjóðadómgæslu. Íslensku landsliðin keppa í EM smáþjóða í lok maí og er líklegt að hann fylgi öðru hvoru liðinu til að dæma leiki í riðlakeppninni. Auk þess eru tækifæri fyrir Leif í sumar þar sem nóg verður af landsleikjum í blaki í Evrópu og von er á að Evrópusambandið skipi hann og aðra dómara Íslands á leiki.







