Landsliðsþjálfarar ráðnir
Landsliðsþjálfarateymið sem var ráðið er það sama og hefur verið undanfarin ár. Apostol Apostolov var ráðinn landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins og Michael Overhage var ráðinn landsliðsþjálfari karlaliðsins. Báðir þjálfararnir leggja metnað sinn í störf sín og má búast við því að æfingahópur fyrir landsliðið verði valinn innan nokkurra vikna og er reiknað með því að síðasta mánuðinn í undirbúningnum verði búið að skera niður í lokahóp.
Landsliðsnefnd BLÍ sér um ráðningu þjálfara hjá landsliðunum. Hennar stefna er að halda stöðugleika í þessum málum og því jákvætt og mikilvægt að sömu þjálfarar haldi áfram að vinna þessa vinnu með afreksfólk í blaki.
Riðlakeppnin á Möltu er eina verkefni landsliðanna enn sem komið er á þessu ári en konurnar keppa dagana 11.-13. júní og karlarnir 18.-20. júní.







