Fréttir

Landsliðsþjálfarar ráðnir

Í vikunni var gengið frá ráðningu landsliðsþjálfara fyrir A landsliðin í blaki. Verkefni landsliðanna er riðlakeppni Evrópumóts smáþjóða en bæði liðin halda til Möltu í júní.

 

Landsliðsþjálfarateymið sem var ráðið er það sama og hefur verið undanfarin ár. Apostol Apostolov var ráðinn landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins og Michael Overhage var ráðinn landsliðsþjálfari karlaliðsins. Báðir þjálfararnir leggja metnað sinn í störf sín og má búast við því að æfingahópur fyrir landsliðið verði valinn innan nokkurra vikna og er reiknað með því að síðasta mánuðinn í undirbúningnum verði búið að skera niður í lokahóp.

Landsliðsnefnd BLÍ sér um ráðningu þjálfara hjá landsliðunum. Hennar stefna er að halda stöðugleika í þessum málum og því jákvætt og mikilvægt að sömu þjálfarar haldi áfram að vinna þessa vinnu með afreksfólk í blaki.

Riðlakeppnin á Möltu er eina verkefni landsliðanna enn sem komið er á þessu ári en konurnar keppa dagana 11.-13. júní og karlarnir 18.-20. júní.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning