Fréttir

Landsliðsmál - lokahópur kvennaliðsins

Þjálfari íslenska kvennalandsliðsins hefur valið lokahóp fyrir EM smáþjóða sem hefst eftir tvær vikur.

 

Landsliðið æfir stíft þessa helgina og þá næstu einnig en liðið heldur til Möltu þann 10. júní. Þar keppir liðið í undanriðli EM smáþjóða þar sem tvö efstu liðin komast upp í úrslitin sjálf sem verða í maí á næsta ári.

Apostol Apostolov hefur valið lokahópinn í þetta verkefni:

Fríða Sigurðardóttir, HK
Birta Björnsdóttir, HK
Steinunn Helga Björgólfsdóttir, HK
Kristín Salín Þórhallsdóttir, HK
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, UiS Volley
Ásthildur Gunnarsdóttir, Frederiksberg Volley
Helena Kristín Gunnarsdóttir, Þrótti Nes
Fjóla Rut Svavarsdóttir, Þrótti Reykjavík
Birna Baldursdóttir, KA
Auður Anna Jónsdóttir, KA
Hjördís Marta Óskarsdóttir, Stjörnunni
Hjördís Eiríksdóttir, Stjörnunni

Á þessum lista má sjá þrjá nýliða í landsliðinu en tvær þeirra fengu verðlaun á uppskeruhátíð BLÍ fyrir keppnistímabilið. Auður Anna skoraði flest stig úr sókn átímabilinu og Hjördís Eiríksdóttir var valin efnilegust í kvennaflokki. Þá var Hjördís Marta ekki langt frá því að skora flest stig í hávörn.

Ánægjulegt er að sjá að gamalkunn landsliðskona er komin aftur í landsliðið en það er hún Birna Baldursdóttir frá KA. Birna tók fram blakskóna að nýju í vetur og er komin aftur í landsliðið eftir 5 ára fjarveru. Birna er aldursforseti liðsins ásamt fyrirliðanum, Fríðu Sigurðardóttur en þær héldu báðar upp á þrítugsafmæli á dögunum.

Íslenska kvennalandsliðið mun spila fjóra leiki í mótinu á Möltu, gegn San Marino í fyrsta leik, Luxembourg, Möltu og Írlandi. Liðið leikur einn leik á föstudeginum 11. júní, tvo leiki þann 12. júní og síðasta leik sinn þann 13. júní.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning