Fréttir

Landsliðsmál - lokahópur karlaliðsins

Karlalandslið Íslands í blaki er á fullu við æfingar um þessar mundir. Michael Overhage hefur valið endanlegan hóp en aðeins fara 11 leikmenn með til Möltu í undankeppni EM smáþjóða.

 

Í hópnum eru:

Reynir Árnason, HK
Brynjar Júlíus Pétursson, HK
Orri Þór Jónsson, HK
Valgeir Valgeirsson, HK
Ólafur J. Júlíusson, HK
Hörður Páll Magnússon, Þróttir R
Valur Guðjón Valsson, Þrótti R.
Emil Gunnarsson, Stjörnunni
Róbert Karl Hlöðversson, Stjörnunni.
Hafsteinn Valdimarsson, Aalborg HIK
Kristján Valdimarsson, Aalborg HIK

Ferðin til Möltu er frá 17.-21. júní 2010. Með í för verður Valdimar Hafsteinsson en hann gegnir starfi fararstjóra. Þá verður Jón Ólafur Valdimarsson alþjóðadómari í blaki einnig með.

Strákarnir spila gegn San Marino, Möltu og Luxembourg. Liðið á ágæta möguleika á að komast áfram en Ísland vann San Marino og Luxembourg á Smáþjóðaleikunum fyrir ári síðan. Ísland vann Möltu síðast á þeirra heimavelli árið 2008, síðast þegar undankeppnin var haldin þar.

Nokkuð sérstök staða er uppi í karlalandsliðinu þar sem enginn leikmaður úr Íslandsmeistaraliðinu er með. Nokkuð öruggt má telja að Hilmar Sigurjónsson, fyrirliði KA væri í liðinu ef ekki væri fyrir bílslysið sem hann lenti í um páskana. Þar fótbrotnaði Hilmar og mun því ekki spila blak í nokkurn tíma.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning