Fréttir

Landsliðsannáll 2011

Tvíburar með frelsingja Grænlands
Tvíburar með frelsingja Grænlands
Íslensku blaklandsliðin áttu nokkuð viðburðaríkt ár 2011. Alls spiluðu öll okkar landslið innanhúss 36 landsleiki á árinu. Í strandblaki voru 17 landsleikir alls. Allir leikir nema tveir voru erlendis.

 

Fyrsta verkefni ársins 2011 var Novotel Cup hjá kvennalandsliði Íslands. Þar spilaði liðið þrjá leiki og lenti í þriðja sæti mótsins á lakara hrinuhlutfalli við hin liðin. Aðeins vantaði eina sigurhrinu í viðbót til þess að vinna mótið en Ísland vann bæði Skotland og Luxemborg 3-1 í mótinu en tapaði naumlega 3-1 gegn Liechtenstein.

Karlalandslið Íslands spilaði til úrslita í Evrópumóti Smáþjóða 6.-8. maí í Andorra. Á þremur dögum spilaði liðið fjóra landsleiki og tapaði þeim öllum og endaði í neðsta sæti.

Smáþjóðaleikar 2011 voru haldnir í Liechtenstein dagana 31. maí til 4. júní. Fjögur landslið fóru frá BLÍ á leikana og komst því miður ekkert þeirra á verðlaunapall að þessu sinni. Kvennalandsliðið í blaki tapaði öllum sínum leikjum og vann aðeins 1 hrinu í mótinu, sem voru nokkur vonbrigði. Karlalandsliðið náði betri árangri og endaði í fjórða sæti mótsins með tvo sigra og þrjú töp á bakinu.

A landsliðin í strandblaki spiluðu bæði á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein. Strákarnir spiluðu fjóra leiki og stelpurnar þrjá. Enginn sigur náðist hjá liðunum en reynslan í keppni sem þessari kemur strandblakinu til góða í framtíðinni.

A landslið Íslands innanhúss fengu heimsókn frá Grænlandi stuttu eftir Smáþjóðaleikana. Grænlensku landsliðin í blaki komu til Íslands í æfingabúðir áður en liðin fóru á Eyjaleikana. Íslensku A landsliðin spiluðu bæði opinberan vináttulandsleik að Varmá í Mosfellsbæ en skemmst er frá því að segja að Ísland vann báða leikina 3-0. Meðfylgjandi mynd er af tvíburabræðrunum Hafsteini og Kristjáni ásamt frelsingja Grænlands eftir leikinn.

Í fyrsta sinn í sögunni sendi BLÍ U19 ára landslið stúlkna í strandblaki til keppni í Norðurlandamóti. Mótið fór fram í Drammen í ágúst og spiluðu tvö lið frá Íslandi í mótinu í alls 10 leikjum. Hjördís Eiríksdóttir og Helena Kristín Gunnarsdóttir voru annað par okkar Íslendinga í mótinu og unnu fyrsta leikinn sem íslenskt unglingalandslið í strandblaki hefur náð. Þær enduðu í 5. sæti mótsins í Drammen. Hitt parið, Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir voru þó fyrri til að vinna fyrstu hrinuna sem íslenskt U19 ára lið í strandblaki hefur unnið þegar liðið vann Svíþjóð 2 21-19 en liðið tapaði svo næstu tveimur hrinum 23-25 og 12-15. Frábær árangur hjá þeim.

Unglingalandslið U17 ára fór á Norðurlandamót í Falköping í Svíþjóð í september en þangað fóru 28 manns á vegum BLÍ. Bæði liðin spiluðu fjóra landsleiki en stelpurnar unnu leik um 5. sætið gegn Færeyjum. Strákarnir töpuðu hinsvegar leik um 5. sætið gegn Færeyjum og enduðu þeir því í sjötta sæti mótsins.

Í nóvember fór U19 ára landsliðið til Færeyja á Norðurlandamót. Aðeins komu fjögur lið til keppni að þessu sinni og var því von á verðlaunum í mótinu. Strákarnir töpuðu öllum sínum leikjum að þessu sinni og enduðu í fjórða sæti mótsins eftir tapleik gegn Færeyjum um þriðja sætið. Stúlkurnar stóðu sig betur en þrátt fyrir tap í öllum leikjum riðilsins náði liðið að vinna Noreg í leik um þriðja sætið í mjög sætum sigri. U19 ára lið stúlkna var því eina liðið sem náði verðlaunum á þessu ári.

Í Færeyjum þurftu liðin að vera einn aukadag þar sem ekki er flogið mjög reglulega á milli Íslands og Færeyja. Blaksamböndin á Íslandi og í Færeyjum höfðu ákveðið að leiknir yrðu vináttulandsleikir á þessum degi. Stelpurnar fóru til Klaksvíkur og Strákarnir á Suðuroy. Báðir þessir leikir unnust 3-1 og allir fóru glaðir heim á leið eftir vel heppnaða ferð.

Alls voru því 53 landsleikir á árinu 2011 en aðeins tveir þeirra hér heima á Íslandi. Það er ansi dapurt hlutfall og ljóst að Blaksamband Ísland þarf að bæta úr þessu. Hafa ber í huga að á undanförnum 5-6 árum hafa verið haldin tvö alþjóðleg mót fyrir landslið. Undanriðill EM smáþjóða í Digranesi í maí 2006 þar sem fjögur lið tóku þátt og NEVZA mót U19 ára landsliða á Akureyri árið 2008 en þar tóku 10 lið þátt.

Ísland heldur utan um Smáþjóðaleika árið 2015 og er ljóst að okkur í blakinu vantar viðburði hingað heim til að undirbúa starfslið og fleira. Því er von á því á næstu árum að BLÍ sæki um að halda jafnvel undanriðil í EM eða hugsanlega öðrum stórmótum og vinni frekar í góðu samstarfi við nágrannaríkin um vináttulandsleiki í undirbúningi landsliðanna.

Ferðir landsliðanna á árinu voru 6 talsins og í þeim ferðum samtals um 130 manns, bæði leikmenn og starfmenn. Heildarkostnaður vegna landsliðsverkefna á árinu eru tæpar 15 milljónir króna og styrkir úr afrekssjóði ÍSÍ, sjóði ungra og efnilegra og sjóði Ólympíufjölskyldunnar vegna landsliðsverkefna BLÍ voru um 1,3 milljón króna.

Sævar Már Guðmundsson
Framkvæmdastjóri BLÍ



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning