Fréttir

Kvennaliðið farið til Möltu

Íslenska liðið hélt af stað í morgun frá Íslandi. Síðustu dagar hafa gengið vel og hafa stelpurnar æft mikið og virðast vera tilbúnar fyrir átökin á Möltu en liðið spilar fjóra leiki þar.


Fyrsti leikur liðsins er á morgun gegn San Marino. Leikurinn hefst kl. 17.30 að staðartíma en tveggja tíma mismunur er á Íslandi og Möltu. Á laugardag eiga stelpurnar leik kl. 11.00 að staðartíma gegn Luxembourg og svo um kvöldið gegn Möltu. Þá spila þær við Írland á sunnudag.

Hópurinn er nú að bíða eftir áframflugi frá París og eiga að lenda á Möltu kl. 19.35 að staðartíma. Keppni hefst strax um hádegisbil á morgun og verður keppt þrjá næstu daga um tvö sæti í úrslitunum sem fram fara í Luxembourg á næsta ári. Um síðustu helgi tryggðu Kýpur og Liechtenstein sér farseðilinn í úrslitin og gaman verður að sjá hvaða tvö lið komast upp úr þessum riðli á sunnudag þegar lokaleikirnir fara fram.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu CEV eða með því að smella hér.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning