Karlalandsliðið æfir af kappi
Almennt - sunnudagur 13.jún.10 22:58 - Lestrar 756

Landslið karla æfir af kappi fyrir undankeppni EM smáþjóða sem fram fer á Möltu 18.-20. júní. Liðið heldur utan þann 17. júní og spilar þrjá leiki og er leikjaplanið eftirfarandi:
Föstud. 18. júní kl. 17.30 San Marínó - Ísland
Laugard 19. júní kl. 20.00 Malta - Ísland
Sunnud. 20. júní kl. 13.00 Ísland - Lúxemborg
Unnt er að fylgjast með gangi leikja á vefsíðu CEV í gegnum statistik. Sjá hér og smella á "live" hnappinn við viðkomandi leik.







