Fréttir

Landsliðin í strandblaki byrjuð að æfa

Laufey blokkar
Laufey blokkar
Landsliðsnefnd og stjórn BLÍ hafa ráðið Karl Sigurðsson til að þjálfa landsliðin í strandblaki fyrir tvö næstu verkefni. Æfingar hjá landsliðunum hófust í Fagralundi í gær í miklum austan vindi. 

Landsliðin í Strandblaki taka þátt í úrtökumóti á Kanaríeyjum fyrir Ólympíuleikanna 2012 dagana 15.-17. október en það er í fyrsta skipti sem BLÍ tekur þátt í slíku móti. Átta leikmenn hafa verið valdir í karlaflokki og 8 leikmenn í kvennaflokki. Alls fara fjórir leikmenn úr hvorum flokki á úrtökumótið þar sem liðin keppa við Svía, Ítala og Spánverja. 
 
Íslansku landsliðið munu æfa allar helgar fram að keppni og á miðvikudögum en mikil eftirvænting ríkir í hópnum þar sem þetta lengir strandblakstímabilið.
 
Leikmenn í 8 manna hópi kvenna
Fríða Sigurðardóttir
Birna Baldursdóttir
Lilja Jónsdóttir 
Laufey Björk Sigmundsdóttir
Karen Björg Gunnarsdóttir
Fjóla Rut Svavarsdóttir
Hjördís Eiríksdóttir
Þórey Haraldsdóttir 
 
Leikmenn í 8 manna hópi karla
Emil Gunnarsson
Eiríkur Eiríksson
Einar Sigurðsson
Birgir Már Vigfússon
Guðmundur P. Guðmundsson
Róbert Karl Hlöðversson
Orri Þór Jónsson
Valgeir Valgeirsson 
 
Karl Sigurðsson verður þjálfari beggja liða og var ráðinn fram yfir smáþjóðaleikana 2011 í Liechtenstein. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning