Karen Björg Gunnarsdóttir, Íþróttamaður HK
Almennt - þriðjudagur 26.jan.10 23:06 - Lestrar 143
Síðastliðinn laugardag var útnefndur Íþróttamaður Kópavogs á 40 ára afmælishátíð félagsins. Karen Björg Gunnarsdóttir, fyrirliði Íslands-, bikar- og deildarmeistara HK var útnefnd að þessu sinni.
Karen Björg átti gott tímabil á síðasta ári fyrir HK en liðið landaði þrennunni í kvennaflokki. Hún tók sér hlé á blakiðkun vegna barneigna en hún fæddi stúlku í haust sem dafnar vel. Karen er þó komin aftur á skrið í blakinu, byrjuð að mæta á æfingar og spila leikina og kemur eflaust til með að hjálpa HK að verja sína titla á þessu leiktímabili.
Karen Björg er tæplega þrítug, uppalin á Akureyri og steig sín fyrstu skref á blakvellinum með liði KA. Síðustu ár hefur stúlkan leikið með HK í Kópavoginum og verið burðarás í þeirra liði. Karen á fjölmarga unglingalandsleiki að baki og hefur leikið 32 A landsleiki fyrir Ísland.





