KA með bikarmeistaratitla í öllum flokkum
Almennt - mánudagur 23.jan.12 15:46 - Lestrar 104
Bikarmót yngriflokka fór fram í KA heimilinu á Akureyri um helgina. Leikið var í 2.flokki kvenna, 3. flokki kvenna og 3. flokki karla. Alls tóku 12 lið þátt í mótinu sem tókst einkar vel.
Í mótinu var leikið upp á þrjár unnar hrinur, sem er í fyrsta sinn sem það er gert í 3. flokki. Nokkuð var um spennandi leiki sem mátti sjá í beinni útsendingu á netinu, eins og fram kom á www.krakkablak.bli.is, en Blakdeild KA var með tilraunaútsendingar frá viðburðinum.
KA hirti alla bikarmeistaratitlana um helgina. Í 2. flokki stúlkna varð lið Þróttar Nes í öðru sætinu og Stjarnan í því þriðja. Í 3. flokki stúlkna varð KA meistari, Þróttur Nes 1 í öðru og HK í þriðja sæti.
Í 3. flokki karla var mikil spenna. KA varð bikarmeistari en liðið var með jafnmörg stig og Stjarnan en hafði tapað færri hrinum. Í þriðja sæti varð lið HK.
Bikarmót yngriflokka hefur fest sig í sessi í blakhreyfingunni undanfarin ár. Þó er ennþá of lítil þátttaka og hefði BLÍ viljað sjá fleiri þátttökulið í mótinu. Ekki var keppt í 2. flokki karla þar sem aðeins tvö þátttökulið skráðu sig til leiks en drógu sig úr keppni og því ekki leikið um þann bikartitil 2012.







