KA liđin styrkja stöđu sína
Um helgina fór fram tveir leikir í Mikasa deild karla og nokkrir leiki í 2. deild karla og kvenna. KA liðin spiluðu við Þrótt Reykjavík á laugardag á Akureyri og fór heimamenn með sigur af hólmi í báðum leikjum.
KA liðið yfirkeyrði karlalið Þróttar í tveimur fyrstu hrinunum, sigruðu 25-15 og 25-13. Í þriðju hrinunni virtist eins og ný lið hafi komið inn á völlinn því dæmið snerist gjörsamlega við. Þróttarar sýndu góða takta í vörn og sókn á meðan KA liðið gerði mistök á mistök ofan og Þróttur vann auðveldan sigur í hrinunni 14-25. Fjórða hrinan byrjaði jöfn og var jafnt þangað til í fyrsta tæknileikhléinu. Þá kom góður kafli hjá KA og komst liðið í 16-8. Þróttarar komust inn í leikinn en náðu þó aldrei að jafna og endaði hrinan 25-21 og KA því með leikinn 3-1. Stigahæstu leikmenn KA voru Piotr Kempisty með 26 stig og Valur Traustason með 12 stig. Í liði Þróttar var Michael Overhage með 9 stig og Aron Bjarnason með 5 stig.
Með sigrinum styrkti KA liðið stöðu sína á toppi Mikasadeildarinnar í blaki karla og er með 16 stig. Þróttur er sem fyrr á botninum með 2 stig.
Kvennaleikurinn var í kjölfarið á karlaleiknum og varð mun lengri. KA liðið vann fyrstu tvær hrinurnar 25-23 og 25-19. Þróttarastelpurnar gáfust ekki upp og unnu öruggan sigur í þriðju hrinunni, 18-25. Fjórða hrinan var barningur allan tímann en Þróttur yfirleitt með undirtökin. KA komst upp að hlið Þróttar í stöðuni 21-21 en Þróttur gaf þá í að nýju og vann hrinuna 22-25. KA hafði oddahrinuna frá byrjun og sigraði hana 15-7 og þar með leikinn 3-2. Stigahæstu leikmenn KA voru Auður Anna Jónsdóttir með 20 stig og Birna Baldursdóttir með 17 stig. Í liði Þróttar var Fjóla Rut Svavarsdóttir með 16 stig og Hildigunnur Magnúsdóttir með 15 stig.
Með sigrinum tryggði KA liðið sér nánast sæti í úrslitum Íslandsmótsins þar sem fjögur efstu liðin spila tvær umferðir.





