Fréttir

KA hafði betur gegn Ými í slökum leik

KA og Ýmir mættust í Mikasadeild kvenna í dag í Digranesi. Leikurinn var ójafn fyrir utan fyrstu hrinuna og skiptust liðin á að vinna hrinur. Endaði leikurinn þó í oddahrinu þar sem KA liðið keyrði yfir Ýmisliðið og vann 2-3.

 

Í fyrstu hrinu leit út fyrir að Ýmiskonur ætluðu að selja sig dýrt. Komust þær í gott forskot í upphafi leiks. KA liðið vann sig hægt og sígandi inn í leikinn að nýju og nær að jafna 16-16. KA liðið hélt síðan út forystu og vann hrinuna 23-25. Í annarri hrinu héldu Ýmiskonur áfram að spila vel og kláruðu KA stelpurnar 25-18. Þriðja hrinan var góð hjá KA stúlkum en slæm hjá Ými. Ekkert gekk upp í móttöku heimaliðsins og nýtti KA sterkar uppgjafir sínar og kláruðu sóknarleikinn vel og unnu 10-25. Í fjórðu hrinunni snerist dæmið við og Ýmiskonur unnu 25-18 og leika þurfti oddahrinu.

Í oddahrinunni áttu KA stúlkur góða byrjun. Sterkar uppgjafir frá Unu Margréti, fyrirliða KA skilaði liðinu góðu forskoti og var liðið yfir 1-8 þegar skipt var um vallarhelming. Þá tók Hulda Elma Eysteinsdóttir til sinna ráða og skilaði hverjum boltanum á fætur öðrum í gólf Ýmis. KA vann hrinuna 5-15 og þar með leikinn 3-2.

Stigahæstu leikmenn í KA liðinu voru Hulda Elma með 16 stig og Auður Anna Jónsdóttir með 10 stig. Í liði Ýmis var Þóra Gunnsteinsdóttir stigahæst með 9 stig en Dögg Mósesdóttir og Inga Lillý Brynjólfsdóttir voru báðar með 8 stig fyrir Ými.

KA fór uppfyrir Þrótt Nes í þriðja sæti deildarinnar með 14 stig en Þróttur Nes á tvo leiki til góða. Ýmir situr enn í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning