Fréttir

KA deildarmeistari í blaki karla

Tveir leikir fóru fram í MIKASA deildunum í blaki í kvöld. Karlalið Þróttar R tók á móti KA og Þróttur Nes heimsótti Fylki. KA tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Mikasa deild karla í kvöld í fyrsta sinn síðan árið 1994.


KA liðið tók enga áhættu í kvöld og mætti með sitt sterkasta lið til leiks. Þróttarar voru án þjálfara síns Michael Overhage og munaði um minna. KA menn áttu ekki í vandræðum með Þróttarana í leiknum og unnu nokkuð örugglega 0-3 (18-25, 14-25, 18-25). Stigahæstu menn voru Piotr Kempisty með 22 stig og Hilmar Sigurjónsson með 9 stig fyrir KA. Í liði Þróttar var Þorgils Einarsson atkvæðamestur með 7 stig og Hörður Páll Magnússon kom honum næstur með 6 stig.

KA liðið tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn og er nú með 18 stig á toppi deildarinnar. KA fékk bikarinn afhentan úr höndum Jasonar Ívarssonar, formanns BLÍ að leik loknum. Liðið á einn leik eftir á morgun gegn Stjörnunni en sá leikur hefst kl. 16.00 í Ásgarði í Garðabæ.

Í Fylkishöllinni mættust Þróttur Nes og Fylkir. Skemmst er frá því að segja að gestirnir unnu leikinn nokkuð örugglega 0-3 (19-25, 19-25, 21-25). Miglena Apostolova var stigahæst í liði Þróttar Nes með 15 stig og Helena Kristín Gunnarsdóttir var með 12 stig. Í liði Fylkis voru Rasa Ratkuté og Hildur Inga Þorsteinsdóttir með 7 stig hvor og Lilja Björk Lárusdóttir skoraði 6 stig.

Þróttur Nes smellti sér upp fyrir KA í annað sæti Mikasa deildar kvenna en bæði lið eiga einn leik eftir og eru jöfn að stigum með 16 stig. Sigur í leik Þróttar Nes á morgun gegn Stjörnunni tryggir þeim annað sætið í deildinni og KA endar þá í því þriðja þó svo að þær vinni HK á sunnudag því hrinuhlutfall Þróttar Nes er mun betra.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning