Fréttir

Íþróttavakning Framhaldsskólanna

Blakkeppni Íþróttavakningarinnar byrjar í dag með keppni í Norðurriðli á Laugum. Alls skráðu 14 lið sig til keppni. Suðurriðlarnir tveir verða á sunnudag í Digranesi.

 

Íþróttavakning Framhaldsskólanna var í fyrsta skipti á síðasta skólaári og var þá haldin blakkeppni í kringum Íþróttadaginn sjálfan. Þetta árið eru tvær undankeppnir en spilað í þremur riðlum. Efstu liðin úr riðlunum fara beint í undanúrslit og liðið með betri árangur í 2. sæti verður fjórða liðið inn í undanúrslitin. Undanúrslitin verða svo haldin á sjálfan íþróttadaginn 19. mars í Smáranum í Kópavogi.

Liðin sem keppa í blakmótinu eru þessi: MA, VMA, Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn í Borgarfirði, MS, FB, Verslunarskóli Íslands, FSu, FSN, FVA, Menntaskólinn á Laugarvatni, Kvennaskólinn, Menntaskólinn í Kópavogi og gestalið framhaldsskólans á Laugum.

Mótið er uppsett á vefnum www.blak.is en Norðurriðillinn er spilaður í dag og Suðurriðlarnir á sunnudag.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning