Fréttir

Íþróttamaður ársins 2011

Guðbjörg, Jason og Jóna Guðlaug
Guðbjörg, Jason og Jóna Guðlaug
Í gær fór fram sameiginlegt hóf ÍSÍ og Samtaka Íþróttafréttamanna um kjör Íþróttamanns ársins 2011. Íþróttamenn allra sérsambanda ÍSÍ fengu sína viðurkenningu afhenta í gær og blakmenn létu sig ekki vanta.

Heiðar Helguson, knattspyrnumaður hjá QPR var kjörinn Íþróttamaður ársins 2011. Því miður komst enginn blakmaður á blað hjá Íþróttafréttamönnum að þessu sinni þrátt fyrir frábær afrek Jónu Guðlaugar Vigfúsdóttur á blakvellinum á síðasta ári.
 
Jóna Guðlaug byrjaði árið með stæl og var valin besti leikmaður (MVP) bikarúrslitaleiksins í Noregi í janúar. Lið hennar UiS Volley vann bikarmeistaratitilinn 2011 í Noregi. Með vorinu lék Jóna Guðlaug vel í sínu liði og skoraði t.a.m. flest stig í norsku úrvalsdeildinni og Noregsmeistaratitillinn var svo í höfn undir lok tímabils hjá liðinu.
 
Í sumar flutti Jóna sig um set til Þýskalands og spilar nú sem atvinnumaður hjá þýska liðinu Rote Raben. Jóna Guðlaug tók við sínum verðlaunum sjálf en hún hefur átt við meiðsli að stríða sem gaf henni möguleika á að lengja dvöl sína á Íslandi eftir jólahátíðina.
 
Hafsteinn Valdimarsson, blakmaður ársins var ekki viðstaddur afhendinguna í gær. Í hans stað tók systir hans, Guðbjörg Valdimarsdóttir, við verðlaununum. Hafsteinn spilar með Marienlyst í Danmörku en það félag er mjög sigursælt og er ríkjandi bikar og landsmeistari í Danmörku. Hafsteinn spilaði í tvö tímabil fyrir HIK Aalborg ásamt bróður sínum en þeir fluttu sig um set eftir gott tilboð frá Marienlyst en félagið hefur aðsetur í Odense.
 
Um þessar mundir er félagið á toppnum í Danmörku og leikur í bikarúrslitum núna í janúar. Liðið er einnig komið áfram í úrslit NEVZA móts félagsliða sem fer fram í lok janúar.
 
Blaksamband Íslands óskar íþróttamönnum ársins 2011 innilega til hamingju með útnefninguna. Meðfylgjandi mynd var tekin af blakfólki ársins ásamt formanni BLÍ eftir afhendinguna í gær. Valdimar Hafsteinsson tók myndina.


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning