Íslansdmótið í strandblaki verður Fantamótið

Vífilfell tekur að sér að leggja útí kostnað við að auglýsa upp mótið á útvarpstöðinni FM, sem og að koma að mótinu að öðru leiti með gjöfum og slíku.
Íslandsmótið í ár verður því kallað Fantamótið.
Þetta er í raun tilraun hjá Vífilfelli en ef vel tekst til með þetta mót þá vilja þeir fá forgang að samningum um stigamótaröð strandblaksins næsta sumar.
Nú er um að gera fyrir alla strandblakara og blakara sem vilja sjá íþróttagreinina vaxa, að mæta í Fagralund á laugardaginn 14. ágúst til að mynda stemningu, og sýna þannig framá að íþróttin er áhorfendavæn og skemmtileg, og þess virði að styrkja.
Koma svo allir blakarar !







