Ísland inn á heimslista FIVB
Almennt - föstudagur 5.feb.10 14:45 - Lestrar 210
Íslenska kvennalandsliðið í blaki hefur enn og aftur brotið blað í sögu Blaksambandsins. Liðið er komið inn á heimslista FIVB og er þar í 90-98 sæti.
Íslenska kvennalandsliðið í blaki er í flokki með liðum eins og Makedóníu og Bretlands þegar litið er til heimslistans en hann á að endurspegla styrkleika liða á heimsvísu. Liðið komst inn á listann fyrir tilstilli þátttöku í 1. umferð Evrópukeppni landsliða vorið 2008 en árið á undan höfðu þær unnið EM smáþjóða og tryggt sér sæti í 1. umferðinni. Ísland tapaði þá fyrir Makedóníu sem komst ekki lengra en í 2. umferð keppninnar.
Karlalandsliðið hefur ekki enn náð inn á heimslistann en vonandi kemur það í náinni framtíð en til þess að komast inn verður liðið að taka þátt í einni af stóru keppnunum á borð við EM landsliða eða HM.







