Ísland áfram þrátt fyrir tap
Ísland vann San Marino 3-1 og Möltu 3-0 en í gær tapaði liðið fyrir Luxemborg 3-0 (25-19, 25-20, 25-18). Þrátt fyrir tapið endaði liðið í öðru sæti riðilsins líkt og árið 2008.
Karlaliðið komst þar með í úrslitin sem haldin verða í Andorra vorið 2011 en þangað fer einnig lið Luxemborgar úr þessum riðli. Í A riðlinum voru 5 lið en keppt var í Andorra um helgina. Kýpur vann riðilinn nokkuð örugglega en lið Skotlands endaði í 2. sæti. Gestgjafarnir enduðu í þriðja sæti og verða því með í úrslitamótinu sem gestgjafar.
Íslensku strákarnir eru vel komnir að árangrinum um helgina því aðeins fóru 11 leikmenn út með liðinu. Liðið er væntanlegt til landsins í dag.







