HK vann Þrótt í KHÍ
Leikir liðanna í vetur hafa verið misjafnir og oft nokkuð spennandi og skemmtilegir á að horfa. Annað var á boðstólnum í kvöld þegar HK hreinlega valtaði yfir Þróttarana í einu og öllu. Ekkert gekk upp hjá Þrótti og þegar spenna var kominn í leikinn settu leikmenn HK góðan vegg í hávörninni. Samtals skoraði HK 16 stig í hávörn í kvöld á móti 4 hjá Þrótti.
Fyrsta hrinan endaði 14-25 en Þróttarar gáfust upp eftir að þeir voru komnir það langt undir að ekki var hægt að vinna það upp. Í annarri hrinu var svipuð staða í boði og endaði hrinan 17-25. Þriðja hrinan var þó jöfn alveg þangað til í stöðunni 14-16 en þá gáfu HK menn í og kláruðu hrinuna 17-25.
HK liðið átti frábæran leik í kvöld og allt gekk upp, hvort sem var í hávörn, lágvörn eða sókn. Móttakan hjá liðinu var þolanleg en það var það helsta sem klikkaði hjá Þrótti.
Stigahæstu leikmenn HK voru Orri Þór Jónsson með 13 stig og Ivo Bartkevics með 9 stig. Þá voru Alexander Stefánsson og Valgeir Valgeirsson með 8 stig hvor. Í liði Þróttar var Aron Bjarnason stigahæstur með 9 stig en á eftir honum var Guðmundur P. Guðmundsson og Michael Overhage með 6 stig hvor.







