Fréttir

HK vann KA í toppslag

Tveir leikir fóru fram í Mikasadeildunum í dag. HK tók á móti KA í toppslag og Ýmir tók á móti KA. Leikirnir fóru fram í Digranesi.

 

KA liðið gat með sigri gulltryggt sér deildarmeistaratitilinn í blaki karla. KA verður þó að bíða um sinn með því að tryggja sér titilinn því HK vann leikinn 3-1. KA byrjaði betur í leiknum og náði strax yfirhöndinni. HK small þá í gír og jafnaði leikinn og komst yfir 13-10. HK bætti svo í og kláraði hrinuna 25-22. KA menn komu ákveðnir til leiks í aðra hrinuna og unnu hana næsta örugglega 18-25 og jöfnuðu leikinn.

HK spilaði vel í þriðju hrinunni og átti KA fá svör við sóknaraðgerðum HK. Heimamenn rúlluðu yfir norðanmenn í hrinunni og unnu hana 25-17. Þá þurfti HK að vinna fjórðu hrinuna til að vinna leikinn. Sú hrina var jöfn undir lokin en fram að því höfðu HK haft góða forystu á gestina. Hrinan endaði 25-23, HK í vil.

Stigahæstu leikmenn voru Piotr Kempisty með 31 stig fyrir KA. Aðrir leikmenn liðsins skoruðu undir 10 stigum. Í HK var Orri Þór Jónsson bestur og gerði 19 stig. Þá var fyrirliði HK, Brynjar Pétursson með 15 stig.

KA liðið er enn á toppi deildarinnar með 16 stig. HK er í öðru sæti með 14 stig og getur með sigri á Stjörnunni í lokaleik liðsins um næstu helgi og jafnað þar með KA að stigum. KA liðið á reyndar tvo leiki eftir og leikur við Þrótt og Stjörnuna 5. og 6. mars nk.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning