Fréttir

HK með sigur gegn Stjörnunni

HK vann nokkuð auðveldan sigur gegn Stjörnunni í Mikasadeild kvenna í kvöld þegar liðin áttust við í Fagralundi í Kópavogi. Leikurinn endaði 3-0, heimaliðinu í vil.

HK kom mun sterkara til leiks í kvöld og gjörsigraði Stjörnuna í fyrstu hrinunni, 25-8. Þetta eru sjaldséðar tölur í efstu deildinni í blaki en Stjarnan náði að laga leik sinn í næstu hrinu. HK náði engu að síður mjög góðu forskoti í annarri hrinu og var yfir 19-7 þegar best lét. Stjarnan klóraði í bakkann og fór hrinan 25-15, HK í vil.
 
Þriðja hrinan var spennandi og Stjarnan með yfirhöndina framan af. Jafnt var á tölum um miðja hrinuna en HK innbyrti sigur með góðum sóknarleik, 25-21.
 
Stigahæstu leikmenn í leiknum í kvöld voru Fríða Sigurðardóttir með 13 stig fyrir HK en Þórey Haraldsdóttir og Berglind Gígja Jónsdóttir skoruðu báðar 7 stig í liði HK. Í Stjörnunni voru þær Hjördís Eiríksdóttir, Rósa Ægisdóttir og Nicole Johansen allar með 3 stig og stigahæstar í liðinu.
 
HK styrkir stöðu sína á toppi Mikasadeildarinnar með 24 stig. Næsti leikur í Mikasadeild kvenna er næstkomandi laugardag, þann 4. febrúar. Þá fær Ýmir lið Þróttar Reykjavíkur í heimsókn og hefst leikurinn kl. 14.00. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning