HK deildarmeistari í MIKASA deild kvenna
Almennt - ţriđjudagur 2.mar.10 20:32 - Lestrar 217
HK lagði Þrótt Reykjavík í leik í KHÍ í kvöld og varð deildarmeistari. Þróttarastúlkur ætluðu að selja sig dýrt í kvöld og unnu fyrstu hrinu leiksins 25-16. HK vann næstu þrjár hrinur, 15-25, 13-25 og 14-25.
Fríða Sigurðardóttir var stigahæst í liði HK með 18 stig og Karen Björg Gunnarsdóttir leikmaður HK skoraði 11 stig. Í liði Þróttar var Valdís Lilja Andrésdóttir með 13 stig og Fjóla Rut Svavarsdóttir með 12 stig.
HK varði deildarmeistaratitil sinn í deildinni frá því í fyrra og er þetta annað árið í röð sem liðið vinnur titilinn. Segja má að HK sé vel að titlinum komið en liðið hefur aðeins tapað einum leik í vetur, gegn Þrótti Nes fyrir austan. Liðið á einn leik eftir í deildinni, gegn KA næstkomandi sunnudag.







