Fréttir

Helena Kristín Íþróttamaður Þróttar Nes

Við afhendinguna
Við afhendinguna
Íþróttamaður Þróttar Nes var útnefndur í gær og var Helena Kristín Gunnarsdóttir, blakkona úr Þrótti Nes sæmd þeim titli árið 2011. 

Árið 2011 var gott ár hjá Helenu í blakinu. Hún var einn af máttarstólpum í meistaraflokki kvenna sem vann þrefalt á keppnistímabilinu og er því Íslands-, bikar- og deildarmeistari með Þrótti.
Helena spilaði með 3 landsliðum á árinu. Hún var valin í A - landslið kvenna sem keppti
 á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein. Þá var hún í fyrsta U - 19 ára landsliði Íslands í strandblaki kvenna sem keppti á Norðurlandamóti í Drammen í Noregi. Að lokum spilaði hún með U - 19 ára landsliðinu á Norðurlandamóti í Færeyjum í nóvember þar sem þær urðu í 3ja sæti. Í vináttuleik við Færeyjar eftir mótið var hún valinn besti leikmaðurinn í þeim leik.
 
Helena Kristín á farsælan feril að baki og á framtíðina fyrir sér í íþróttinni. Hún byrjaði að æfa 9 ára gömul með Þrótti Nes og byrjaði í meistaraflokki aðeins 15 ára gömul. Í tilkynningu frá Þrótti Nes segir að Helena sé fyrirmynd allra ungmenna og er ekki bara góður íþróttamaður heldur góð manneskja og gefur mikið af sér, stundar heilbrigt líferni, er ábyrg og metnaðarfull í því sem hún tekur sér fyrir hendur.
 
Það er ævinlega ánægjulegt að sjá þegar blakfólk fær titla sem þessa í safnið og óskar heimasíða BLÍ henni til hamingju með frábæran árangur á árinu 2011. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning