Fréttir

Heimaliđiđ sigursćlt á bikarmóti

Um helgina fór fram bikarmót yngriflokka í annað sinn. Heimaliðið var sigursælt og hampaði tveimur gullverðlaunum og einu bronsi en keppt var í 2. og 3. flokki drengja og stúlkna.

 

Í gærkvöld hófst keppnin með leikjum í öllum flokkum. Alls voru 14 lið mætt til leiks frá 7 félögum. Mótið fór fram í Fagralundi í Kópavogi og var ekki að sjá annað en að allir hefðu skemmt sér vel á vel skipulögðu móti.

Í 3. flokki stúlkna varð Víkingur/Reynir bikarmeistari árið 2010. Jason Ívarsson, formaður BLÍ mætti til að afhenda bikarinn í þessum flokki en sigurliðið vann alla sína leiki, þó lentu þær í oddahrinu í tveimur leikjunum sem þær unnu svo. Í öðru sæti var lið Stjörnunnar og í því þriðja endaði KA. Alls voru 6 lið að keppa í 3. flokki stúlkna á þessu bikarmóti.

Í 3. flokki drengja varð lið KA bikarmeistari árið 2010. KA liðið vann Stjörnuna í tæplega tveggja tíma leik, 3-2 en Stjarnan endaði í öðru sæti keppninnar. HK og Grundarfjörður voru hin tvö liðin sem tóku þátt í þessum flokki og hafði HK betur gegn Grundfirðingum í lokaleiknum en bæði lið höfðu þá tapað sínum leikjum. HK endaði því í þriðja sæti og fengu bronsverðlaun. Sævar Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BLÍ áfhenti verðlaun í þessum flokki.

Í 2. flokki stúlkna voru aðeins tvö lið skráð til leiks, HK og Stjarnan. HK vann leik liðanna á föstudagskvöld nokkuð örugglega 3-0 og þurftu því aðeins að vinna eina hrinu í öðrum leik liðanna á laugardeginum. HK gerði sér lítið fyrir og vann þann leik einnig 3-0 en var sá leikur öllu jafnari en fyrri daginn og gat endað hvoru megin sem var. Sævar Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BLÍ afhenti Stjörnunni silfrið og HK gullverðlaun.

Í 2. flokki drengja var svipað upp á teningnum og hjá stúlkunum. Aðeins voru tvö lið skráð til leiks, frá HK og Stjörnunni. HK vann fyrri leik liðanna 3-0 á föstudag og unnu svo aftur í dag með sömu tölum og hampaði liðið bikarmeistaratitlinum. Enn og aftur afhenti Sævar liðunum verðlaunin að móti loknu og þá orðið ljóst að Stjarnan hafði unnið silfur í öllum flokkum.

Blakdeild HK hafði yfirumsjón með skipulagningu mótsins og var Ásta Sigrún Gylfadóttir mótsstjóri. Blaksambandið þakkar blakdeildinni og Ástu Sigrúnu sérstaklega vel fyrir unnin störf um helgina.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning