Grunnskólamót Akureyrar
Mótið er haldið að frumkvæði Blakdeildar KA en í samvinnu við BLÍ og KEA sem styrkt hefur útbreiðslustarf í krakkablaki á sínu svæði. Alls hafa 14 lið skráð sig til keppni og er byrjað eldsnemma á sunnudagsmorgun og spilað fram undir hádegi. Spilað er eftir reglum í krakkablaki.
Segir í tilkynningu frá blakdeild KA að vonandi verður hægt að stækka mótið að ári ef framkvæmdin gengur vel. Þá er hugmyndin um að bæta við deild fyrir 6. bekk og einnig að fylgja núverandi 8. bekk eftir og hafa mót einnig fyrir 9. bekk.
"Það er von okkar að mótið festi sig í sessi og fleiri bæjarfélög taki upp slík mót. Þá mætti halda annað mót þar sem sigurvergarar í hverju bæjar-/sveitarfélagi mundu keppa á úrslitamóti og krýndur yrði grunnskólameistari í hverjum bekk frá t.d. 6.-10. bekk", segir Sigurður Arnar Ólafsson, formaður blakdeildar KA.
Allt um mótið má finna á www.blak.is







