Fréttir

Fyrri keppnisdegi lokið

Í kvöld hófst undankeppni 2 í Bridgestonebikarnum á Akureyri. Tvö efstu sætin komast í undanúrslitin sem haldin verða í Laugardalshöllinni laugardaginn 13. mars.

 

KA og HK hafa bæði unnið sína leiki í karlaflokki og eru því efst og jöfn að stigum eftir fyrri daginn. KA vann Hamar 2-0 og Grundarfjörð einnig 2-0. HK vann Grundarfjörð og Þrótt Nes í kvöld, 2-0 í báðum leikjunum.

Í kvennaflokki eru HK og Fylkir efst og jöfn að stigum með fjögur stig. HK átti nokkuð þægilega leiki í kvöld, unnu Skauta nokkuð örugglega 2-0 og svo Þrótt Reykjavík, einnig 2-0. Fylkisliðið átti góða leiki í kvöld og vann bæði Stjörnuna og Ými, 2-0.

Leikir hefjast að nýju kl. 08.30 í fyrramálið í KA heimilinu og hvetjum við alla til þess að fylgjast með gangi mála á www.blak.is og þar er smellt á Bridgestonebikarinn.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning