Fylkir í annað sætið
Leikurinn var jafn til að byrja með en um miðja hrinuna stungu Fylkiskonur af og komust í 19-13. Þróttur náði að jafna leikinn 19-19 og áttu gestirnir góðan endasprett og unnu hrinuna 23-25. Þróttur nýtti sér svekkelsi Fylkis í upphafi annarrar hrinu og komst í 7-1. Fylkisliðið jafnaði 11-11 og náði góðu forskoti aftur, 18-12. Að nýju neituðu Þróttarastúlkur að gefast upp og náðu að minnka forskotið en reynslumikið lið Fylkis náði að klára hrinuna 25-23 og jafna leikinn. Fylkiskonur byrjuðu þriðju hrinuna betur og voru með forystu alla hrinuna. Fylkir landaði sigri 25-21 eftir að Þróttur hafði minnkað forskotið. Þróttur byrjaði fjórðu hrinuna vel og komst í 0-4. Fylkir var ekki lengi að jafna leikinn og komast yfir í stöðunni 13-14. Fylkir kláraði leikinn vel og keyrðu yfir Þrótt og unnu síðustu hrinuna 25-17 og þar með leikinn, 3-1.
Fylkir er nú í öðru sæti Mikasadeildarinnar eftir 10 leiki með 14 stig, tveimur stigum á eftir toppliði HK. Þróttur Nes á tvo leiki til góða á Fylki en er í þriðja sæti með 12 stig.
Stigahæstu leikmenn voru Andrea Burgherr með 14 stig fyrir Fylki, Rasa Ratkuté og Sóley Ásta Karlsdóttir voru með 12 stig hvor. Í liði Þróttar var Fjóla Rut Svavarsdóttir stigahæst með 18 stig, þar af 7 hávarnir. Valdís Lilja Andrésdóttir var með 13 stig og Hildigunnur Magnúsdóttir með 12 stig fyrir Þrótt.
Næsti leikur í Mikasadeild kvenna er leikur Ýmis og KA næstkomandi laugardag í Digranesi.







