Fátt kom á óvart í bikarnum
Í karlaflokki voru það heimamenn í KA sem tryggðu sér sæti með því að vinna alla sína leiki og tapa ekki hrinu í mótinu. Í öðru sæti var lið HK sem tapaði einungis einum leik, einmitt gegn KA. Þessi lið fara því í pott og verða dregin annað hvort gegn Þrótti R eða Stjörnunni.
Í kvennaflokki var ekki síðri keppni en toppliðið í Mikasadeildinni, HK sem tapaði ekki hrinu í mótinu og fer því áfram í undanúrslit. Með þeim fylgir lið Fylkis sem tapaði aðeins leiknum gegn HK en vann oddahrinu gegn Þrótti Reykjavík og Álftanesi. HK og Fylkir fara í pott þar sem þau verða dregin gegn KA eða Þrótti Nes.
Í næstu viku verður dregið í undanúrslitin í Bridgestonebikarnum. Ekki er búið að negla tímasetninguna ennþá en verður auglýst hér á síðunni um leið og það er klárt. Undanúrslitin verða leikin í Laugardalshöllinni laugardaginn 13. mars og úrslitin verða sunnudaginn 14. mars. Endilega, takið þessa helgi frá vegna þessarar árlegur blakveislu.
Öll úrslit má finna á www.blak.is







