Deildakeppnin á fullu um helgina
Í Mikasadeildinni eru 5 leikir á dagskrá og hefst veislan í kvöld með kvennaleik Þróttar R og Þróttar Nes í íþróttahúsi KHÍ. Á morgun laugardag leikur Þróttur Nes við HK í Digranesi og hefst sá leikur kl. 14.00 en þetta eru tvö efstu liðin í deildinni og því að miklu að keppa fyrir bæði lið. Um 15.30 leika KA konur gegn Fylki í leik í KA heimilinu og á sama tíma mætast HK og Stjarnan í Mikasadeild karla í Digranesi. Þriðji leikurinn í Digranesi er svo leikur Ýmis og Stjörnunnar í Mikasadeild kvenna en áætlað er að sá leikur hefjist kl. 17.00.
Í 2. deild kvenna eru tveir leikir um helgina þegar Bresi heimsækir Stjörnuna á laugardag kl. 16.30 og HK b heimsækir Aftureldingu á sunnudag kl. 14.15.
Í 3. deild kvenna eru fjölmargir leikir en seinni umferð riðlakeppni Suður fer fram á Hvolsvelli. Þar er gríðarleg spenna í B riðlinum þar sem fjögur lið eru efst og jöfn með 8 stig. Í A riðlinum hefur lið Álftanes bestan árangur og hefur nánast tryggt sér sæti í úrslitariðlinum fyrir 3. deildina en tvö efstu liðin fara í þann riðil sem leikinn verður 9.-10. apríl. Á Fáskrúðsfirði er leikið í 3. deild kvenna einnig en þar hefur Þróttur Nes c bestan árangur eftir tvær umferðir.







