Danski bikarinn á sunnudag
Almennt - föstudagur 20.jan.12 14:39 - Lestrar 116

Bikarúrslitaleikirnir í danska bikarnum fara fram á sunnudag. Karlaleikurinn er á undan og byrjar kl. 13.30 að dönskum tíma. Kvennaleikurinn er svo settur á kl. 16.00 en leikirnir fara fram í Odense.
Bræðurnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir spila með Marienlyst sem eru nú að verja titilinn að þessu sinni. Marienlyst mætir Gentofte sem hefur verið helsta mótspyrna þeirra bræðra í vetur en Gentofte er aðeins þremur stigum á eftir Marienlyst á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar.
Elsa Sæný Valgeirsdóttir er leikmaður Holte IF sem mætir liði Bröndby sem er um þessar mundir í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar, á eftir Holte IF.
Bikarúrslitaleikirnir verða í beinni útsendingu á netinu, http://www.kanalsport.dk en er búist við miklum spennuleikjum að þessu sinni.







