Fréttir

Búist við spennandi undanúrslitum

Nú rétt í þessu var dregið í Bridgestonebikarnum. Það var Arngrímur Þorgrímsson, forstjóri Betra Grips sem sá um dráttinn að þessu sinni. Bikarmeistarar síðustu ára fengu erfiða andstæðinga í undanúrslitunum en búast má við spennuleikjum í öllum viðureignum þann 13. mars næstkomandi. Úrslitaleikirnir verða sunnudaginn 14. mars þar sem sigurliðin úr undanúrslitunum mætast.

 

Í kvennaflokki tryggði lið KA sér fyrst í undanúrslit og leikur þ.a.l. fyrsta leik kl. 12.00 laugardaginn 13. mars. Fylkir kom upp úr bikarnum og mætir KA í þessum fyrsta leik. Liðin hafa einu sinni leikið saman í vetur og hafði Fylkir betur, 3-0 í Fylkishöllinni. Þar með varð ljóst að Þróttur Nes leikur á móti efsta liðinu í Mikasadeildinni, HK og hefst sá leikur kl. 14.00. HK, sem er bikarmeistari frá síðustu leiktíð tapaði sínum eina leik í vetur á móti Þrótti Nes í Neskaupstað í haust. Liðin léku til úrslita í síðustu bikarkeppni og vann HK þann leik 3-1.

Í karlaflokki tryggðu bikarmeistarar Þróttar R sig fyrst í undanúrslit og leika þar af leiðandi leik nr. 1 í karlaflokki. Sá leikur hefst kl. 16.00 og eru mótherjarnir lið KA. Þessi lið léku til úrslita í fyrra og vann Þróttur Reykjavík 3-2 eftir að KA menn höfðu unnið fyrstu tvær hrinurnar auðveldlega. Í vetur hefur KA haft betur í öllum þremur viðureignum liðanna, 1-3, 3-2 og 3-1. KA liðið er efst í Mikasadeildinni og getur gulltryggt sér deildarmeistaratitilinn á morgun í leik gegn HK. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Stjarnan og HK. Liðin hafa unnið sína heimaleiki gegn hvort öðru í vetur en allir þrír leikir liðanna hafa farið í oddahrinu. Stjarnan-HK hefst kl. 16.00 laugardaginn 13. mars.

Úrslitaleikirnir í Bridgestone bikarnum verða sunnudaginn 14. mars og verða sýndir í beinni útsendingu í sjónvarpinu.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning