Bridgestonebikarinn um helgina
Í fyrri undankeppninni tryggðu KA og Þróttur Nes sér sæti í undanúrslitum Bridgestonebikars kvenna. Í karlaflokki tryggðu Bikarmeistararnir í Þrótti Reykjavík sér sæti í undanúrslitum ásamt Stjörnunni.
Nokkra athygli vekur að bæði toppliðin í Mikasadeildunum eru enn í keppninni en tvö sæti í undanúrslitum er í boði. Í kvennaflokki leika sjö lið í einum riðli og mun því mæða mikið á liðunum þar sem þau spila alls 6 leiki, tvo á föstudagskvöldinu og fjóra á laugardag. Allt getur gerst í kvennakeppninni en fimm af þeim sem keppa spila í Mikasadeildinni. Telja má líklegast að HK og Fylkir séu sigurstranglegust en þó má ekki gleyma liðum eins og Ými, Stjörnunni og Þrótti Reykjavík sem gætu komið á óvart.
Í karlariðlinum eru 6 lið að keppa og eru KA og HK sigurstranglegust þar. Þó er þarna ágætis lið frá Þrótti Nes en þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu HK í Fylkishöll fyrr í haust og náðu hrinu af KA mönnum. Þá eru Hrunamenn og Grundfirðingar sem gætu komið á óvart í keppninni þannig að allt getur gerst.
Undanúrslit og úrslit Bridgestone bikarsins verða í Laugardalshöllinni 13. og 14. mars næstkomandi en dregið verður í undanúrslitin í næstu viku.







