Fréttir

Bridgestonebikarinn 2010

Úrslitahelgi Bridgestone bikarsins fer fram um helgina í Laugardalshöllinni. Um er að ræða stærstu blakhelgi ársins og hefst veislan um hádegisbil á laugardag.

 

Leikið verður í undanúrslitum meistaraflokka allan laugardaginn í Laugardalshöllinni en dagskráin er svona:

Konur
Kl. 12.00  KA - Fylkir
Kl. 14.00  Þróttur N - HK

Karlar
kl. 16.00  Þróttur R - KA
kl. 18.00  Stjarnan - HK

Á sunnudaginn verða svo sjálfir úrslitaleikirnir í Höllinni og er áætlað kvennaleikurinn hefjist kl. 14.00 og karlaleikurinn í kjölfarið. Báðir leikirnir verða sýndir í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV, sjónvarpi allra landsmanna.

Undankeppnirnar í Bridgestonebikarnum fóru frá í Fylkishöllinni og í KA heimilinu. Samtals voru 17 lið sem hófu leik, 9 kvennalið og 8 karlalið. Fjögur lið fóru beint í undanúrslitin úr fyrri keppninni, Þróttur R og Stjarnan í karlaflokki og Þróttur Nes og KA í kvennaflokki en þessi lið sigruðu sína riðla í Fylkishöllinni.

Í undankeppni 2 sem fram fór í KA heimilinu spiluðu liðin sem eftir sátu um tvö sæti í undanúrslitum. Voru það lið KA og HK sem komust áfram í karlaflokki og HK og Fylkir í kvennaflokki. Þessi lið fóru svo í pott þar sem dregið var í undanúrslitaleikina.

Umgjörð úrslitahelgarinnar í Höllinni er í umsjón Blaksambands Íslands. Til að aðstoða við veitingasölu, miðasölu og framkvæmd leikjanna mun blakdeild Þróttar R koma inn með sjálfboðaliða. Landsliðsmenn víðs vegar á landinu gefst kostur á að selja miða í forsölu á viðburðinn sem fjáröflun upp í verkefnin sem framundan eru og hvetjum við fólk til að kaupa miða. Aðgangseyrir er kr. 1.000 á dag.

Blaksambandið hvetur landsmenn til að fjölmenna í höllina um helgina og sjá bestu blaklið landsins keppa í frábærri umgjörð.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning