Breytingar í stjórn á ársþingi BLÍ
Ársþing BLÍ var haldið í 38. sinn í dag í Laugardalnum í Reykjavík. Á þingið mættu 28 þingfulltrúar með samtals 42 atkvæði og telst það meiri þátttaka en undanfarin ár en þó í meðallagi.
Þingið hófst með kosningu þingforseta, Hreggvið Norðdahl og þingritara Sævar Má Guðmundsson. Venjuleg þingstörf hófust að því loknu og skýrði Jason Ívarsson frá skýrslu stjórnar og Aðalheiður Sigursveinsdóttir skýrði frá reikningum ársins 2009. Velta Blaksambands Íslands var rétt tæpar 23 milljónir og hagnaður eftir fjármagnsliði var um 600 þúsund. Þá höfðu skuldir lækkað þó nokkuð en áætlun fyrir árið 2010 gerir þó ráð fyrir enn meiri lækkun á skuldum. Fjárhagsáætlun var lögð fyrir þingið og var hún samþykkt án nokkurra umræðna.
Fyrir þingið lá tillaga um reglugerð í Íslandsmóti BLÍ. Mesta breytingin fólst í úrslitakeppni og skýrari ramma utan um deildakeppnina. Tillagan fékk góða umfjöllun í allsherjarnefnd á þinginu en var á endanum vísað til stjórnar að útfæra betur ásamt mótanefnd. Helstu skilaboðin sem fylgdu úr nefndinni voru þau að hafa aðeins tvo unna leiki í úrslitum Íslandsmótsins en tillagan gerði ráð fyrir þremur unnum og stækkun á keppninni.
Ný reglugerð um öldungamót BLÍ var einnig til umræðu á ársþinginu og var það allsherjarnefnd sem fjallaði um hana. Nefndin samþykkti reglugerðina og vildi bæta við klausu um mál sem lögð eru fyrir öldungaþing, að þau ættu að berast öldungi 21 degi fyrir öldungamót. Var tillagan borin þannig upp og samþykkt einróma.
Leita þurfti afbrigða til að taka til afgreiðslu tvær tillögur. Annars vegar var tillaga Aðalheiðar Sigursveinsdóttur um stofnun útbreiðslusjóðs BLÍ. Hins vegar var tillaga Miglenu Apostolovu um breytt stigakerfi í blaki, þ.e. að taka upp kerfi þar sem sigurlið fær 3 stig vinni það leik 3-1 og 3-0 en tvö stig vinni það leik 3-2 og tapliðið fengi þá 1 stig. Þingið samþykkti að taka þessi mál á dagskrá þingsins og var tillögunni um útbreiðslusjóðinn vísað til fjárhagsnefndar og stigakerfistillögunni til allsherjarnefndar.
Fjárhagsnefndin fjallaði um fjárhagsáætlunina sem samþykktist óbreytt á ársþinginu. Í umræðu um útbreiðslusjóðinn kom önnur tillaga úr nefndinni, þ.e. að stofna tvo sjóði. Annar sjóðurinn heitir útbreiðslusjóður BLÍ og hinn héti yngriflokkasjóður BLÍ. Stjórn BLÍ sér um að skipa sjóðsstjórnir fyrir sjóðina sem gjaldkeri hefur formennsku með en tekjur sjóðanna koma annarsvegar úr öldungamóti BLÍ og útbreiðslustyrk ÍSÍ. Sjóðsreglur og annað mun stjórn BLÍ taka fyrir og ákveða með teknu tilliti til tillagnanna.
Tillagan um stigakerfið fékk misjafnan hljómgrunn í allsherjarnefndinni. Ákveðið var á endanum að búa til nýja tillögu um að taka upp stigakerfið 2-1 eins og þekkist í alþjóðablaki. Þá fær sigurlið alltaf 2 stig og tapliðið 1 stig.
Í lok þings var komið að kosningum. Tvö sæti voru laus í stjórn BLÍ þar sem Stefán Jóhannesson og Davíð Búi Halldórsson höfðu lokið kjörtímabili í stjórn BLÍ. Þrír voru í kjöri til stjórnar BLÍ að þessu sinni. Stefán Jóhannesson, Kristján Geir Guðmundsson og Lilja Margrét Hreiðarsdóttir. Gengið var til kosninga um sætin og fór kosningin þannig að Stefán Jóhannesson var með 30 atkvæði, Kristján Geir Guðmundsson með 22 atkvæði og Lilja Margrét Hreiðarsdóttir með 10 atkvæði. Stefán og Kristján því kjörnir fulltrúar í stjórn BLÍ á ársþingi árið 2010.
Einnig var kosið um sæti í varastjórn BLÍ. Þeir varamenn sem fyrir voru gáfu allir kost á sér áfram en auk þeirra bættist Lilja Margrét Hreiðarsdóttir við. Í kosninginunni hlaut Hreggviður Norðdahl flest atkvæði, 26 talsins, Óskar Hauksson og Valdimar Hafsteinsson voru báðir jafnir með 25 atkvæði en Lilja Margrét Hreiðarsdóttir með 19 atkvæði. Varastjórn verður því óbreytt með Hreggvið, Óskar og Valdimar.
Ársþing BLÍ er æðsta vald blakhreyfingarinnar. Þar er umræða um fyrirkomulag allra mála er lúta að blaki á Íslandi og virkir þingfulltrúar geta komið skoðunum sínum á framfæri þar og jafnvel breytt háttum á ýmsum málum. Nokkur ánægja var með störf þingsins nú í ár og minntist formaður BLÍ á samheldni í lokaræðu sinni á þinginu við þingslit.







