Bræðurnir með Norðurlandameistaratitil
Almennt - sunnudagur 29.jan.12 11:17 - Lestrar 111

Bræður með annan titil
Marienlyst vann bikarmeistaratitilinn í Danmörku síðastliðinn sunnudag í Odense í leik gegn Gentoft. Í gær vann Marienlyst Gentofte aftur í hörku leik, 3-2. Á föstudag vann liðið Middelfart 3-1 og á fimmtudag unnu þeir Nyborg frá Noregi 3-2.
Tvíburabræðurnir Hafsteinn og Kristján komu til Marienlyst sem atvinnumenn síðastliðið haust eftir tveggja ára veru hjá HIK Aalborg. Þeir bræður hafa nú unnið tvo stóra titla í Danmörku og eru þeir titlar þeirra fyrstu á ferlinum. Áður léku þeir hjá KA á Akureyri sem aldrei náðu að vinna titil á þeim tíma.
Blaksamband Íslands sendir hamingjuóskir til bræðranna með Norðurlandameistaratitilinn 2012.







