Blakmenn í mottukeppni
Almennt - fimmtudagur 4.mar.10 13:27 - Lestrar 244

Vignir Ţröstur
Keppnin snýst um að safna áheitum á heimasíðunni www.karlmennogkrabbamein.is en keppt er við KSÍ, KKÍ og HSÍ. Blaksambandið (BLÍ) er með 5 manna lið í keppninni líkt og öll hin samböndin og eiga allir eflaust eftir að sjá þessa menn safna yfirvaraskeggi allan marsmánuð. Auk Vignis eru í liðinu Stjörnumennirnir, Róbert Karl, Emil og Hannes ásamt HK-ingnum Ivo Bartkevics.
BLÍ vill hvetja alla til að heita á liðið okkar því hér er um alvöru keppni að ræða á milli boltagreinanna í landinu. Má heita á liðið á þessum hlekk hér.







