Fréttir

Blakmenn í mottukeppni

Vignir Ţröstur
Vignir Ţröstur
Krabbameinsfélag Íslands ýtti úr vör mánaðarlöngu átaki undir yfirskriftinni "Mottu-mars" í vikunni. Öll helstu sérsambönd landsins í boltagreinum skoruðu hvert á annað í mottukeppni eða söfnun yfirvaraskeggs og er BLÍ þar með Vigni Hlöðversson þar fremstan í flokki.

 

Keppnin snýst um að safna áheitum á heimasíðunni www.karlmennogkrabbamein.is en keppt er við KSÍ, KKÍ og HSÍ. Blaksambandið (BLÍ) er með 5 manna lið í keppninni líkt og öll hin samböndin og eiga allir eflaust eftir að sjá þessa menn safna yfirvaraskeggi allan marsmánuð. Auk Vignis eru í liðinu Stjörnumennirnir, Róbert Karl, Emil og Hannes ásamt HK-ingnum Ivo Bartkevics.

BLÍ vill hvetja alla til að heita á liðið okkar því hér er um alvöru keppni að ræða á milli boltagreinanna í landinu. Má heita á liðið á þessum hlekk hér.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning