Fréttir

Blakmaður ársins 2011: Hafsteinn Valdimarsson

Hafsteinn á Smáþjóðaleikum
Hafsteinn á Smáþjóðaleikum
Stjórn BLÍ hefur valið Hafstein Valdimarsson sem blakmann ársins 2011. 

Hafsteinn er leikmaður Marienlyst í Danmörku en liðið er um þessar mundir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar. Síðastliðin tvö leiktímabil hefur Hafsteinn verið ásamt Kristjáni, bróður sínum hjá HIK Aalborg. Það lið endaði í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í fyrra en munaði þó minnstu að liðið næði fjórða sætinu og kæmist í úrslitakeppnina. 
 
Lið hans, Marienlyst, ætlar sér stóra hluti í vetur og er í undanúrslitum í bikarkeppninni en sá leikur fer fram á morgun, fimmtudag. Liðið hefur að verja bæði danska bikarinn og danmerkurmeistarann frá síðustu leiktíð en þeir bræður gengu til liðs við félagið í sumar. Hafsteinn hefur spilað stórt hlutverk í miðjustöðunni í vetur en liðið hefur aðeins tapað tveimur leikjum af 12 í deildinni. Marienlyst er eitt fjögurra liða sem leikur í úrslitum NEVZA keppni félagsliða í lok janúar.
 
Hafsteinn Valdimarsson var í A landsliði Íslands í báðum verkefnum ársins og var einn af burðarásum í liðinu. A landsliðið spilaði í úrslitum EM Smáþjóða í byrjun maí en hafnaði í neðsta sætinu. Liðið lék einnig á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein en þar endaði liðið í fjórða sæti af 6 þjóðum.
 
Blaksamband Íslands óskar Hafsteini til hamingju með útnefninguna blakmaður ársins 2011 og óskar honum góðs gengis. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning