Blakkona ársins 2011: Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir
Almennt - miðvikudagur 14.des.11 15:59 - Lestrar 1149

Jóna Guðlaug í leik með Rote Raben
Jóna Guðlaug leikur með Rote Raben II sem er í 2. deildinni í Þýskalandi. Jóna er lykilmaður í sínu liði og stefnir á að komast í aðallið félagsins áður en langt um líður. Rote Raben er í toppbaráttunni í þýsku Bundesligunni um þessar mundir ásamt því að spila í Evrópubikarkeppni félagsliða.
Á síðasta leiktímabili spilaði Jóna með UiS Volley í Stavanger í Noregi. Liðið varð bikarmeistari í Noregi í janúar 2011 þar sem Jóna Guðlaug var valin besti leikmaðurinn (MVP) í úrslitaleiknum. Um vorið hampaði lið hennar svo Noregsmeistaratitlinum 2011.
Jóna Guðlaug var í A landsliði Íslands sem keppti á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein en þar var hún einn af burðarásunum í liðinu. Þrátt fyrir slakt gengi liðsins gekk henni vel í leikjum íslenska liðsins og vakti hún áhuga núverandi þjálfara síns hjá Rote Raben sem fékk hana til liðsins í sumar.
Blaksamband Íslands óskar Jónu Guðlaugu til hamingju með útnefninguna Blakkona ársins 2011 og óskar henni góðs gengis.







