Fréttir

Bikarmót Yngriflokka um helgina

Um helgina fer fram Bikarmót Yngriflokka í KA heimilinu á Akureyri. Mótið verður nokkuð stórt í sniðum að þessu sinni en 2. og 3. flokkur keppa í þessu móti.

Mótið hefst kl. 14.00 á morgun laugardag og verður leikið upp á þrjár unnar hrinur í öllum flokkum. Alls skráðu sig 14 lið til leiks en HK og Stjarnan drógu lið sín úr keppni í 2. flokki karla þar sem þau tvö lið voru aðeins skráð til leiks. Því verður ekki keppt í bikarkeppni í 2. flokki karla á þessu leiktímabili.
 
HK, KA, Stjarnan og Þróttur Nes eru aðeins með lið í Bikarkeppninni að þessu sinni. Fjögur lið eru í 3. flokki drengja og fjögur lið eru í 3. flokki stúlkna. Í 2. flokki stúlkna eru fjögur lið einnig.
 
Áætlað er að keppni verði lokið kl. 15 á sunnudag en fara þá bikarar á loft í KA heimilinu. Eins og áður segir verður leikið upp á þrjár unnar hrinur í bikarkeppninni og verða síðustu leikir á sunnudag leiknir á miðvellinum í KA heimilinu. Það er von BLÍ og blakdeildar KA að fyrirkomulag mótsins komi til með að festast í sessi en þetta er í fyrsta sinn sem framkvæmd mótsins er með þessum hætti. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning