Bikarmót yngriflokka um helgina
Almennt - föstudagur 29.jan.10 14:13 - Lestrar 278
Um helgina verður Bikarmót yngriflokka haldið í Fagralundi í Kópavogi. Keppt er í 2. og 3. flokki og eru alls 15 lið skráð til keppni.
Mótið hefst kl. 18.30 í dag og er leikið frameftir kvöldi. Hefst mótið að nýju snemma í fyrramálið og er áætlað að því ljúki um kl. 17 á morgun en mótsstjóri ákvað að gera hlé á keppni á meðan landsleikur Íslands og Frakklands færi fram um kl. 13.00.
Nánari upplýsingar um mótið og uppröðun leikja má finna á www.krakkablak.bli.is
Aðrir viðburðir helgarinnar eru leikir í 2. deild karla og kvenna fyrir austan og slagur HK og Þróttar í Mikasadeild karla á sunnudag. Sá leikur er á dagskrá kl. 13.00 í Fagralundi. Þá leika Afturelding og UMFG leik í 2. deild karla suður að Varmá kl. 13.30 á sunnudag. Sjá nánar á www.blak.is







