Ársþing BLÍ á laugardag
Ársþing BLÍ er á hverju ári og markar endalok starfsársins. Á þinginu kemur út ársskýrsla sambandsins fyrir það starfsár sem senn er að ljúka. Þar kemur fram starf stjórnar BLÍ og allra nefnda innan sambandsins ásamt úrslitum leikja hérlendis sem erlendis.
Alls eru 13 héraðssambönd eða íþróttabandalög sem eru með blakstarf. Iðkendur í blaki við áramótin síðustu voru 2005 talsins og mæta eiga því 68 fulltrúar rétt á setu á ársþingi BLÍ.
Tveir stjórnarmenn eru að ljúka kjörtímabili sínu, Davíð Búi Halldórsson og Stefán Jóhannesson. Ljóst er að Davíð hefur ekki gefið kost á sér áfram en Stefán er tilbúinn að halda áfram.
Fyrir ársþinginu liggur 1 tillaga um deildakeppni og Íslandsmót. Þó hefur önnur tillaga borist sambandinu en þingið þarf að samþykkja að hún verði tekin fyrir á þinginu. Allt um ársþingið, tillögur, dagskrá og fleira má finna undir Ársþing BLÍ







