Áramótablak í Mosó 2011
Almennt - fimmtudagur 22.des.11 10:24 - Lestrar 388
Hið árlega Áramótablak í Mosó verður að venju haldið á gamlársdagsmorgun frá
kl 09:00-12:00 í Íþróttamiðsstöðinni að Varmá.
Mótið er einstaklingsmót og er opið öllum 16 ára og eldri. Þátttökufjöldi er takmarkaður við 78 manns en 72 geta mest spilað samtímis. Það þýðir að ef mótið fyllist þá situr 1 hjá á hverjum velli en þó aldrei oftar en einu sinni í gegnum mótið.
Keppt er um titilinn Áramótakóngur og Áramótadrottning ársins 2011.
Greiða þarf fyrirfram og telst skráning ekki gild fyrr en greiðsla hefur
borist. Mótsgjald er 1200 kr.
Til að skrá sig á mótið skal greiða 1200 kr inn á reikning: BA: 0515-15-595 KT: 0910714799
Hafdís H Björnsdóttir skráður eigandi.og senda tölvupóst á:
thoreybj@gmail.com þar sem kemur fram *ÁRAMÓT*
Ef greitt er fyrir fleiri en einn eða ef ekki er greitt af eigin reikningi þá vinsamlegast sendið tölvupóst á thoreybj@gmail.com og tilgreinið fyrir hverja er verið að borga.
Mjög mikilvægt er að tilgreina hvort verið sé að greiða fyrir konur eða
karlar til að einfalda uppsetningu mótsins.
* ATH....að skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða og senda staðfestingu á greiðslu.*
Hlökkum til að sjá ykkur að Varmá í Áramótablakinu 2011
Blakdeild Aftureldingar







