Fréttir

Alþjóðleg íþróttasálfræðiráðstefna 30. júní 2010

Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting.

Þátttakendur munu læra hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að afreksíþróttamönnum. Efni ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og leitast er við að það eigi erindi við alla þá sem koma að afreksíþróttastarfi svo sem þjálfara, afreksíþróttamenn, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, lækna,  íþróttafræðinga, stjórnendur í íþróttahreyfingunni og dómara. Ráðstefnan hefst kl: 8:30 og lýkur 13:30. Boðið verður upp á léttar kaffi veitingar á milli vinnustofa.

Ráðstefnugjald er 12.000 kr.  Veittur er 50% afsláttur fyrir nemendur (láta vita hjá hvaða skóla).  Skráning fer fram á skraning@ru.is.

Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning 537-26-500670, kt: 670169-0499. Þegar þátttökugjald er greitt í gegnum heimabanka þarf að senda kvittun á begga@isi.is.  Einnig verður hægt að greiða á staðnum.

Dagskrá og nánari upplýsingar má sjá hér og inn á heimasíðu ÍSÍ



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning