Fréttir

Afreksstyrkir ÍSÍ

Afrekssjóður ÍSÍ úthlutaði í dag styrkjum til sérsambanda vegna verkefna á árinu 2012. BLÍ hlaut styrk svipaðan og undanfarin ár en úthlutað var úr þremur sjóðum samtímis.

Úr Afrekssjóði var úthlutað tæpum 68 milljónum króna í heildina sem er um 10 milljónum hærra en undanfarin ár. BLÍ fékk úthlutað 500.000 kr. úr sjóðnum að þessu sinni sem skiptist niður á A landslið karla og kvenna en verkefni liðanna eru EM smáþjóða á Möltu fyrir karlana og EM smáþjóða í Luxemborg fyrir konurnar. Liðin taka þátt í undankeppni í lok maí á þessu ári en bæði liðin keppa á sömu helginni.
 
Úthlutun úr sjóði ungra og framúrskarandi var í heild um 10,5 milljónir króna. BLÍ fékk úthlutað 500.000 kr. fyrir unglingalandsliðsverkefni ársins en verkefnin eru U17 og U19 á Norðurlandamót í haust.
 
Ólympíufjölskylda ÍSÍ úhlutar um 5 milljónum króna í heildina. Úr þeim sjóði fær BLÍ 300.000 kr. fyrir A landsliðsverkefni ársins.
 
Í heildina fékk BLÍ því úthlutað 1.300.000 kr. en heildarúthlutun úr þessum þremur sjóðum nemur kr. 83.100.000.
 
Flest sérsambönd fá úthlutun úr þessum sjóðum að þessu sinni. HSÍ fær mest eða tæpar 12 milljónir króna, FRÍ fær tæpar 10 milljónir og SSÍ tæpar 9 milljónir. ÍF, KKÍ og KSÍ fá tæpar 5 milljónir úthlutað að þessu sinni og önnur sérsambönd fá minni fjárhæðir. 
 
Umsóknir bárust frá 20 sérsamböndum eða nefndum í Afrekssjóð og var kostnaðaráætlun samtals um 477 milljónir. Afrekssjóður ÍSÍ veitir 67,6 milljónir í styrki sem er um 14,2% af kostnaðaráætlun.
 
Aðeins einn íþróttamaður verður á A styrk á árinu 2012. Alls verða 13 íþróttamenn á B styrk og 7 íþróttamenn á C styrk. Hækkun á flokkunum nemur um 40.000 kr. á mánuði fram að Ólympíuleikum. 
 
Afrekssjóður ÍSÍ er fjármagnaður með hlutdeild úr tekjum íþróttahreyfingarinnar frá Íslenskri Getspá samkvæmt ákvörðun Íþróttaþings. Auk þess er framlag frá ríkinu 34,7 milljónir á árinu 2012.


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning