Fréttir

Afreksbúðirnar gengu vel

Afreksbúðir BLÍ fóru fram um helgina þar sem alls um 65 ungmenni á aldrinum 13-17 ára komu og æfðu hjá nokkrum af bestu þjálfurum landsins.

Afreksbúðirnar fóru fram að Varmá í Mosfellsbæ og voru allt í allt fjórar æfingar, laugardag og sunnudag. Alls voru 6 þjálfarar að störfum mest allan tímann en Magnús Aðalsteinsson hafði yfirumsjón með búðunum.

Skipulagning búðanna var í höndum yngriflokkanefndar BLÍ og framkvæmdin tókst vel. Jason Ívarsson, formaður BLÍ leit við á sunnudeginum og lýsti yfir ánægju sinni með framtak nefndarinnar en heildarsvipurinn var glæsilegur. Æfingar voru á 6 völlum í einu þar sem einn þjálfari var með hvern völl og hóparnir skiptu um velli á hálftíma fresti. Þátttakendur fengu einnig fræðslu um næringarfræði og markmiðasetningu í fyrirlestraformi og voru í hádegismat frá Saffran í hádeginu, báða dagana.

Allir þátttakendur búðanna fengu merktan hleðslubol frá MS sem setti sinn svip á búðirnar. U17 ára þjálfararnir voru þjálfarar í búðunum og skoðuðu krakkana og nokkrum þátttakendum búðanna hefur verið bætt í U17 ára forval.

Á lokaæfingunni var stillt upp 10 liðum og haldið blandað mót. Að búðunum loknum mátti sjá ungmennin þreytt en ánægð og virðist sem afreksbúðir sem þessar séu komnar til að vera. 



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning