Fréttir

Afreksbúðir og þjálfararáðstefna

Mikið er að gerast í blakhreyfingunni um helgina þegar koma saman ungir og efnilegir krakkar í afreksbúðir sem YFN BLÍ stendur fyrir. Á sama tíma verða U19 ára landsliðin að æfa og þjálfarar fá sína menntun - allt á sama stað, að Varmá í Mosfellsbæ.

Alls var um 100 ungmennum víðsvegar af landinu sent boðsbréf í Afreksbúðir BLÍ í sumar en búðirnar verða haldnar að Varmá í Mosfellsbæ um helgina. Magnús Aðalsteinsson verður aðalþjálfari búðanna en hann mun njóta stuðnings U17 ára þjálfaranna, Zdravko Demirev og Apostol Apostolov ásamt Miglenu Apostolovu. Þá verða Emil Gunnarsson og Peter Guernari þeim innan handar með þjálfunina í búðunum. Æfingar hefjast snemma á laugardagsmorgun og verða tvær æfingar og á sunnudeginum verða einnig tvær æfingar. Í búðunum verða einnig fyrirlestrar fyrir unga íþróttamanninn, annar um næringarfræði og hinn um markmiðasetningu. 
 
U19 ára landsliðin verða á fjórum æfingum þessa helgi, einnig að Varmá í Mosfellsbæ en liðin halda til Falköping í Svíþjóð dagana 24.-26. september til keppni á NEVZA móti ungmenna.
 
Íslenskir blakþjálfarar fá loksins að mennta sig enn frekar um helgina þegar BLÍ verður með þjálfararáðstefnu. Hingað til lands er kominn vel menntaður þjálfari í blaki og sitjandi blaki sem mun leiða um 30 þjálfara og íþróttakennara alla helgina. Ásta Sigrún Gylfadóttir íþróttafræðingu og sérfræðingur í krakkablaki verður með krakkablaknámskeið á laugardaginn og allir þátttakendur fá svo kennslu í sitjandi blaki frá Peter Guernari. Námskeið Peters hefst kl. 18.00 á föstudagskvöld en verður framhaldið á sunnudagsmorgun.


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning